Umsagnir viðskiptavina

“Þetta námskeið er besta fjárfesting sem ég hef gert varðandi mína heilsu. Námskeiðið er mjög fræðandi og skipulega uppbyggt svo auðvelt að fylgja þeim leiðbeiningum sem gefnar eru. Líðan mín hefur breyst svo birtist í betri svefni, bættri meltingu og þyngdartapi svo um munar Ég hef lært að eigin líðan er á mína ábyrgð til dæmis með því að taka eftir hvernig líkami minn bregst við mismuandi fæðutegundum og að setja ekki hvað sem er ofan í mig án þess að athuga innihaldið fyrst. Ég mæli 100% með þessu námskeiði. ”

Olga Ásrún Stefánsdóttir

“Frábært námskeið, framúrskarandi kennsla og fræðsla. Yndislegur kennari, áhugavert og hvetjandi námskeið. Upplifði hvatningu og eftirfylgni frá Önnu Lind sem gerði mér kleift að halda í mjög mikla mataræðisbreytingu og fylgja henni eftir með ánægju og án þess að vera á hnefanum, þar sem allt flæddi á eðlilegan hátt. Líður miklu betur á allan mögulegan hátt og mun mæla með námskeiðinu við alla. Allra besta námskeið og árangursríkasta sem ég hef farið á. Takk fyrir mig. ”

Þorbjörg Pálmadóttir

“Vá frábært námskeið. Ég hef farið á pínu mörg námskeið, alltaf að læra eitthvað nýtt svo ég geti lifað mínu besta lífi. En þetta námskeið er eitt það besta sem ég hef farið á. Allar upplysingarnarnar sem við fáum, öll kennslan, öll fræðslan, bara allt... Mín líðan hefur snarbreyst á þessu mataræði. VÁ TAKK....”

Kolbrún Björnsdóttir

“Þetta námskeið er virkilega vel uppsett, fræðandi og faglegt! Fyrirlestrarnir eru mjög áhugaverðir og veita tækifæri á að auka skilning á líkamasstarfseminni bæði andlegum og líkamlegum þáttum. Það er dýrmætt að gefa sèr tækifæri til að læra að byggja upp andlega og líkamlega heilsu með því að vinna að rót vandans, sem liggur oftar en ekki í meltingunni og streituvaldandi lifnaðarháttum. Þetta námskeið veitir frábær verkfæri til að heila líkamann og hjálpar þèr að læra að bera ábyrgð á líkamlegri og andlegri heilsu. ”

Rakel Magnúsdóttir

“Þetta námskeið var akkúrat það sem ég þurfti á að halda á þessum tímapunkti. Frá fyrsta degi námskeiðsins var eins og kveikt á rofa og ég var bara tilbúin í þessa þrjá mánuði sem framundan voru. Mikill og vandaður fróðleikur með virkilega áhugaverðu efni og mikilvægum áminningum. Takk kærlega fyrir mig 🙏 ”

Ingibjörg Magnúsdóttir

“Ég er alveg hæstánægð með þetta námskeið! Þetta er lífsstíll sem mig langar að halda áfram með því ég finn muninn á sjálfri mér hvað varðar orku og úthald yfir daginn, betri svefn og andlega líðan. Ég lærði helling um mat og áhrif á líkamann og margt fleira nytsamlegt sem ég tek með mér áfram í framtíðina. Mig langar aftur að taka svona hreinsun að ári og mun mæla með þessu til allra. Takk kærlega fyrir mig!”

Guðríður Eva Halldórsdóttir

“Allt búið að vera frábært, og gott að geta tekið þetta á sínum hraða,þ.e. kynningarnar. Búin að fylgja fyrirmælum vel og fylgja mataræðinu alveg eins hægt er. Ég finn viðvarandi mun á næringar"skilningi" og hvernig ég horfi á næringu t.d. þegar ég fer að versla. Ég er sannfærð um að margt er að skila sér í breyttri hegðun hjá mér og þetta er sannarlega búið að hafa áhrif á matarvenjur heimilisins í heild. Mér líður mun betur, minni bólgur og óþolsviðbrögð og kaffi og áfengi munu fara mjög hægt aftur inn í mitt líf.”

Anna Kristín Kristjánsdottir